Léttir til í kvöld
 Klukkan 6 var suðaustlæg átt, 3-8 m/s og rigning eða skúrir um landið suðvestanvert, en annars hægvirði og víða léttskýjað norðanlands og austan. Kólnað hafði niður undir frostmark víða á norðausturhálendinu og á Brú á Jökuldal var eins stigs frost. Annars staðar var hitinn 6 til 9 stig.
Klukkan 6 var suðaustlæg átt, 3-8 m/s og rigning eða skúrir um landið suðvestanvert, en annars hægvirði og víða léttskýjað norðanlands og austan. Kólnað hafði niður undir frostmark víða á norðausturhálendinu og á Brú á Jökuldal var eins stigs frost. Annars staðar var hitinn 6 til 9 stig.Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Fremur hæg suðlæg átt og skúrir í dag, en snýst í norðan 5-10 m/s og léttir til í kvöld. Hiti 7 til 13 stig.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				