Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Léttir til á morgun
Föstudagur 28. júlí 2006 kl. 08:58

Léttir til á morgun

Á Garðskagavita voru A 6 klukkan 8 í morgun og hiti 12,4 stig.
Klukkan 6 í morgun var austlæg átt, yfirleitt 3-8 m/s. Skýjað að mestu og víða þokuloft við norður- og austurströndina, annars úrkomulítið. Hiti var 8 til 15 stig, hlýjast vestanlands.


Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Austan 5-10 m/s og skúrir, en léttir víða til á morgun. Hiti 12 til 18 stig.


Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Austlæg átt, yfirleitt 3-8 m/s. Skýjað með köflum og lítilsháttar væta öðru hverju, en léttir til norðanlands þegar líður á daginn. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast norðanlands. Hæg austanátt á morgun og víða bjart veður norðan- og vestanlands, annars súld eða þokuloft, einkum úti við ströndina.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024