Föstudagur 25. júní 1999 kl. 22:15
LETIN DÝRKEYPT BIFREIÐAEIGENDUM
Lögreglan í Keflavík sektaði 48 bifreiðaeigendur fyrir að hafa trassað að færa bifreiðar sínar til skoðunar innan tilskilins tíma og 10 fyrir að færa ekki bifreiðarnar til endurskoðunar. Skv. útreikningum VF gera þetta 424 þúsund króna útgjöld.