Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lét reiðina bitna á bílnum
Sunnudagur 22. júlí 2007 kl. 13:04

Lét reiðina bitna á bílnum

Nokkur erill hjá lögreglunni vegna skammtanalífsins í Reykjanesbæ í nótt en allt fór þó stóráfallalaust fram. Ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglu. Einn var tekinn vegna ölvunarakstur.

Þá voru skráningarnúmer tekin af bifreið  í Reykjanesbæ en kvartað hafði verið undan akstri hennar.  Kom í ljós að bifreiðin er ótryggð og því ekki um annað að ræða en að klippa númerin af. Ökumaður tók reiði sína út á bifreið sinni með höggum og spörkum.

Þá var tilkynnt um þjófnað á nýrri fólksbílakerru sem stóð utan við fyrirtæki á Smiðjuvöllum 3 í Keflavík.  Kerran sem er tveggja öxla var læst með keðju sem klippt var í sundur.  Ekki vitað hver eða hverjir voru þarna að verki.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024