HSS
HSS

Fréttir

Lestur, eins og að drekka mjólk
Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 16:16

Lestur, eins og að drekka mjólk

Í hröðu og tækinvæddu upplýsingasamfélagi nútímans hefur hugtakið læsi fengið víðtækari merkingu en áður. Nú er m.a. fjallað um tæknilæsi, upplýsingalæsi og menningarlæsi en það eru meginstoðirnar í því sem nefnt er upplýsingamennt. Við sem erum að búa einstaklinga undir að verða fullgildir
þátttakendur í nútímasamfélagi þurfum því að viðahafa annars konar og
fjölbreyttari stuðning við þá en áður. Tilgangurinn með þessum greinastúf er samt sem áður að benda á að það að geta lesið og skilið texta er sá grunnur sem upplýsingamenntin byggir á. Lestur er og verður einhver mikilvægasta upplýsingaleið og upplýsingagjöf um ókomna tíð. Þess vegna er brýnt að börn og unglingar líti á lestur sem eðlilegan þátt í daglegu lífi og tengi hann ekki eingöngu við skólagöngu eða afmörkuð verkefni. Við foreldrar getum verið til fyrirmyndar í að móta viðhorf í þá veru og höfum til þess ýmis auðsótt tækifæri. Í dag berast t.d. dagblöð og vikublöð inn á hvert heimili þar sem er að finna fjölbreytt og áhugavert efni fyrir alla aldurshópa. Bóka- og tímaritaútgáfa er mikil og fjölbreytt og ýmiss fróðleikur er á Internetinu. Þessir valkostir ættu að gera okkur foreldrum auðvelt fyrir með að finna lesefni sem hentar aldri og tengist áhuga barna
okkar og unglinga. Mörg dæmi sýna að þau eru ótrúlega dugleg og geta tekist á við ólíklegustu verkefni fái þau til þess hvatningu. Stirðlæsi unglingurinn með kíló af ensku útgáfunni af Harry Potter í fanginu er dæmi um það. Áhugi hans á efninu er hans lestrarhvati. Þess vegna þurfum við foreldrarnir að vera vakin og sofin yfir því að grípa lestrartækifærin þegar þau gefast.
Metnaðarfullt þróunarverkefni Reykjanesbæjar um bætta lestrarmenningu
til að efla lestrarfærni og málskilning barna hefur nýlega verið ýtt úr vör, lykilræðararnir þar hljóta m.a. að vera við foreldrarnir. Hvetjum börnin og unglingana okkar til að lesa, veitum þeim athygli og styrkingu þegar þau eru að því, lesum með þeim og ræðum við þau um efnið.
Stuðlum að þeirri menningu, að lestur, sé jafn eðlilegur og mikilvægur þáttur í daglegu lífi þeirra eins og það að drekka mjólk.

Með sumarkveðju,
Björn Víkingur Skúlason, foreldri skólabarna og grunnskólakennari
Bílakjarninn
Bílakjarninn