HSS
HSS

Fréttir

Lestrarmenning í Reykjanesbæ: Öll 2ja ára börn fá bókina „Svona stór“
Miðvikudagur 21. apríl 2004 kl. 11:41

Lestrarmenning í Reykjanesbæ: Öll 2ja ára börn fá bókina „Svona stór“

Öll börn í Reykjanesbæ fædd 2002 fengu í Viku bókarinnar afhenta bókagjöf á Bókasafni Reykjanesbæjar. Bókagjöfin er liður í verkefninu „Lestrarmenning í Reykjanesbæ“ sem nú hefur staðið yfir í eitt ár.  Frá og með mánudeginum 26. apríl og út apríl gefst foreldrum og forráðamönnum kostur á að koma með börnin á bókasafnið og fá bókina afhenta.
Ákveðið var þegar lestrarmenningarverkefninu var ýtt úr vör 23. apríl 2003 að á hverju ári þar til verkefninu lýkur árið 2006 fái börn í Reykjanesbæ afhenta bókagjöf í Viku bókarinnar, sem í ár var 20. – 26. apríl. Í fyrra fengu öll börn á aldrinum 2ja til 6 ára bókagjafir sem hæfðu þeirra aldri. Í ár fá öll börn fædd 2002 bókina „Svona stór“ eftir Þóru Másdóttur, sem sérstaklega var valin af leikskólakennurum í Reykjanesbæ enda þykir hún henda þessum aldri vel. Bókina gaf Félag íslenskra bókaútgefenda en bókaforlagið Mál og menning gaf bókina út árið 2001. Bókinni fylgir auk þess bæklingurinn „Viltu lesa fyrir mig“ og tvö bókamerki frá Bókasafni Reykjanesbæjar með hagnýtum upplýsingum.
Markmið verkefnisins „Lestrarmenning í Reykjanesbæ“ er að fá allt samfélagið til að taka höndum saman um að efla mál- og lesþroska barna, allt frá fæðingu til fullorðinsára. Það verður ekki síst gert með því að lesa fyrir börn frá unga aldri og gera samfélagið meðvitað um gildi þess að lesa. Það eykur bæði lestrarfærni og málskilning og teygir verkefnið anga sína víða. Það nær til heimila, bókasafns, grunn- og leikskóla, fjölskyldu- og félagsþjónustu, heilsugæslu, menningar- og tómstundastarfs bæjarins, auk ýmissa annarra stofnana og samtaka í Reykjanesbæ.
Bílakjarninn
Bílakjarninn