HSS
HSS

Fréttir

Lést um borð í skipi undan Garðskaga
Laugardagur 3. september 2005 kl. 11:23

Lést um borð í skipi undan Garðskaga

Banaslys varð um borð í  Hauki EA 76 á fimmtudagskvöld þegar skipið var statt 30 sjómílur vestnorðvestan við Garðskaga. Tildrög slyssins voru þau að skipverjinn klemmdist á milli trollhlera í skipinu og lést nær samstundis samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar.

Tilkynning kom frá skipinu klukkan 20:44 og var þyrla Landhelgisgæslunnar send á vettvang. Kom hún til baka með hinn látna kl. 22:14.

Maðurinn sem lést í vinnuslysinu hét Ásgeir Arnar Jónsson, til heimilis að Urðargerði 4, Húsavík. Hann var fæddur 17. nóvember árið 1954 og lætur eftir sig sjö börn.

Fyrr sama dag og slysið varð var björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein kallað að skipinu þar sem það hafði fengið trollið í skrúfuna. Tveir kafarar sveitarinnar skáru trollið laust. Hið hörmulega banaslys varð síðan um kvöldið.
Bílakjarninn
Bílakjarninn