Lesið hjá slökkviliðinu
Starfsmenn slökkviliðs Brunavarna Suðurnesja hlýddu á lestur í kaffistofunni hjá sér upp úr hádegi í dag þegar Kristján Geirsson lögreglumaður las fyrir þá upp úr bókinni Norræn sakamál. Upplesturinn er liður í lestrarátaki Reykjanesbæjar en frá því í haust hafa fjölmörg fyrirtæki tekið þátt í átakinu. Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja skorar á Landsbanka Íslands í Keflavík í átakinu og verður lesið fyrir starfsmenn bankans nk. þriðjudag.