Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lenti með veikan farþega og bilaðan hemlabúnað
Mánudagur 31. mars 2014 kl. 08:42

Lenti með veikan farþega og bilaðan hemlabúnað

Læknir var um borð og hlúði að farþeganum.

Flugvél frá Brithish Airways, sem var á leið frá Bandaríkjunum til London fyrir skömmu, þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli með veikan farþega. Læknir var um borð í vélinni og annaðist hann farþegann þar til  vélin lenti.

Skömmu eftir lendingu kom í ljós að bilun hafði komið upp í hemlabúnaði flugvélarinnar og þurftu því allir farþegarnir, 280 manns, að yfirgefa hana. Héldu þeir leiðar sinnar með öðrum vélum síðar um daginn til London. Talsvert annríki varð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar meðan á þessu stóð.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024