Lenti með veikan farþega
Farþegaflugvél þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli um helgina, þar sem farþegi í henni veiktist. Vélin var á leiðinni frá Los Angeles til London þegar viðkomandi einstaklingur kenndi sér meins.
Sjúkrabifreið og lögregla tóku á móti vélinni og var farþeginn fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.