MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Lenti með látinn farþega á Keflavíkurflugvelli
Mánudagur 17. nóvember 2008 kl. 22:42

Lenti með látinn farþega á Keflavíkurflugvelli



Farþegaflugvél á leið frá Moskvu til Toronto í Kanada lenti á Keflavíkurflugvelli í kvöld vegna alvarlegra veikinda farþega, erlends karlmanns á fertugsaldri. Lífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn. Frá þessu er greint á mbl.is nú áðan.

Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum tilkynnti flugstjórinn um alvarlega veikan farþega um borð og óskaði eftir lendingarleyfi hér. Flugvélin lenti svo á Keflavíkurflugvelli um kl. 18.15. Hinn látni varð eftir hér á landi en fjölskylda hans, eiginkona og ung börn, héldu ferð sinni áfram.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Flugvélin hélt för sinni áfram um kl. 20.00 eftir að fyllt hafði verið á eldsneytistanka hennar.


mbl.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn