Fréttir

Lenti með fótinn undir hjóli strætisvagns
Þriðjudagur 12. september 2017 kl. 12:34

Lenti með fótinn undir hjóli strætisvagns

Það óhapp átti sér stað í Reykjanesbæ í gærdag að þrettán ára piltur gekk í veg fyrir strætisvagn við strætóskýli með þeim afleiðingum að hjól vagnsins fór yfir fót hans. Vagninn var að nema staðar þegar atvikið átti sér stað. Talsverðir áverkar voru á fæti piltsins og var hann fluttur með sjúkrabifreið undir læknis hendur til aðhlynningar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024