Lenti með bilaðan hreyfil
Flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum var í morgun tilkynnt um flugvél sem væri að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli með bilaðan hreyfil. Þarna var á ferðinni flugvél frá bandaríska hernum, af gerðinni Hercules C 130.
Flugvélinni var lent heilu og höldnu skömmu síðar eða um hálf tíuleytið í morgun.