Laugardagur 20. september 2014 kl. 07:32
Lenti með bilaðan hreyfil
Herkúlesvél með bilaðan hreyfil lenti á Keflavíkurflugvelli í vikunni. Tilkynnt var um óvissustig þar sem um væri að ræða bilun í einum hreyfli vélarinnar af fjórum. Sjö manns voru í áhöfn vélarinnar og tókst lending hennar giftusamlega.