Bygg
Bygg

Fréttir

Lenti í sjálfheldu ásamt móður sinni
Laugardagur 28. maí 2005 kl. 11:12

Lenti í sjálfheldu ásamt móður sinni

Ungur strákur í 6. flokki í knattspyrnu í Keflavík lenti í sjálfheldu á Akranesi nú um daginn. Strákurinn var ásamt liði sínu að keppa á móti á Akranesi og fóru þeir niður í fjöru eins og þeir gera oft þegar þeir keppa þar.

Sjórinn flæddi of fljótt að og lenti hann í sjálfheldu ásamt móður sinni sem reyndi að bjarga honum. Ekki var mikil hætta á ferðum en björgunarsveit frá Akranes kom á staðinn og aðstoðaði þau við að komast aftur á þurrt.

Móðir drengsins sagði í samtali við Víkurfréttir að hægt væri að brosa að þessu eftir á en drengurinn var ekki meira skelkaður en það að hann hóf leik strax eftir að hafa verið bjargað.

Mynd/Skessuhornið

Bílakjarninn
Bílakjarninn