Bygg
Bygg

Fréttir

Lenti á öðrum hreyfli
Þriðjudagur 30. maí 2006 kl. 22:52

Lenti á öðrum hreyfli

Flugvél frá Swiss Air flugfélaginu missti afl á öðrum hreyfli á leið sinni yfir Atlantshafið frá Zürich til New York og var henni beint til Keflavíkurflugvallar. Vélin lenti klukkan 21.16 heilu og höldnu. Flugmaðurinn hafði slökkt á bilaða hreyflinum og var viðbúnaðaráætlun sett í gang á flugvellinum. Ekki var um nauðlendingu að ræða, einungis það sem kallað er öryggislendingu að því er fram kemur á mbl.is.

Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi hjá Flugmálastjórn Íslands sagði í samtali við Morgunblaðið að 61 manns væru um borð í vélinni, þar af eru 6 í áhöfn. Vélin er af gerðinni Boeing 737-800. Ekki er talið að hætta hafi verið á ferðinni. Farþegarnir eru nú komnir í flugstöðina og verið er að útvega þeim hótelgistingu fyrir þessa óvæntu millilendingu á Íslandi.

Texti: mbl.is, VF-mynd/Þorgils
Bílakjarninn
Bílakjarninn