Lendum við í logni eða illviðri?
Þessa stundina er mjög hægur vindur á Suðurnesjum og slydda. Sumir kunna að segja að þetta sé lognið á undan storminum. Gefin hefur verið út rauð viðvörun vegna sunnan roks eða ofsaveðurs.
Skörp skil eru í veðrakerfinu. Yfir vestasta hluta landsins er spáð skörpum veðraskilum fyrripartinn í dag. Vestan þeirra er hægur vindur, kalt og snjókoma. Austan megin við skilin er hins vegar sunnan illviðrið sem mun geisa á stærstum hluta landsins. Af þessu má ráða að staðan á vesturhluta landsins er óvenju viðkvæm, því ef staðsetning skilanna verður aðeins frábrugðin því sem spárnar segja, getur það haft þá þýðingu að veðrið verður mjög ólíkt því sem ætlað var.
Rauð viðvörun: Sunnan rok eða ofsaveður
Sunnan 25-33 m/s og hviður yfir 50 m/s. Rigning, talsverð um tíma. Foktjón líklegt og útlit fyrir vatnavexti og raskanir á samgöngum. Ekkert ferðaveður. Búast má við miklum áhlaðanda og ölduhæð.