Bygg
Bygg

Fréttir

Lenda þurfti með veikan farþega
Föstudagur 21. mars 2014 kl. 09:37

Lenda þurfti með veikan farþega

Þrír læknar um borð

Lenda þurfti flugvél, sem var á leið frá Delhi til New York, á Keflavíkurflugvelli í vikunni vegna veikinda farþega. Þrír læknar voru um borð í vélinni og buðu þeir fram aðstoð sína þegar farþeginn veiktist.

Sjúkrabifreið kom á vettvang ásamt lækni frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Var maðurinn fluttur á neyðarmóttöku Landspítalans til skoðunar.

Flugvélinni var svo flogið áfram á áfangastað, en veiki farþeginn varð eftir á Íslandi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn