Lekinn ekki meiri eða minni en síðustu ár
Viðgerð á Íþróttahúsinu í Njarðavík kostar 1.155.300 krónur ef gert er við suðurgluggana til bráðabirgða, til að stöðva lekann sem er að eyðileggja parketgólf íþróttahússins. Ef hins vegar gert er við til frambúðar og álgluggar settir í suðurhlið hússins, eins og umhverfis- og tæknisvið mælir með, þá mun viðgerðin kosta 4.400.000 krónur.
Við úttekt á húsinu sögðu fyrrverandi og núverandi forstöðumenn hússins, Stefán Bjarkason og Hafsteinn Ingibergsson, að lekinn í húsinu væri hvorki meiri né minni en undanfarin ár. Þeir tóku einnig fram að ástandið væri misjafnt milli ára og færi það eftir veðráttu hvað það læki mikið inn.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvenær verður farið í að gera við Ljónagryfjuna í Njarðvík.