Bygg
Bygg

Fréttir

Leki kom að báti við Grindavík
Mánudagur 18. maí 2015 kl. 08:38

Leki kom að báti við Grindavík

– Björgunarsveit fór með dælur um borð og fylgdi bátnum til hafnar

Leki kom að vélarrúmi báts sem var við veiðar um 9 sjómílur austur af Grindavík í nótt. Óskuðu skipverjar eftir aðstoð á sjötta tímanum í morgun.  Þá höfðu dælur bátsins naumlega undan við að dæla sjó úr skipinu en lítið þurfti út af að bregða til að svo yrði ekki.

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út og fór á staðinn á björgunarskipinu Oddi V. Gíslasyni og björgunarbátnum Árna í Tungu. Aðstoðar var einnig óskað frá Slökkviliði Grindavíkur til að auka dælugetu björgunarliðsins.

Rétt um klukkan 06:00, eða um hálfri klukkustund eftir að aðstoðarbeiðni barst frá skipverjum, sem eru þrír, var björgunarbáturinn Árni í Tungu kominn á staðinn með dælur.

Báturinn sigldi fyrir eigin vélarafli til hafnar í Grindavík í fylgd björgunarskipanna. Gert var ráð fyrir að skipin verði kæmu til hafnar á áttunda tímanum. Þá átti að taka bátinn á land og athuga hvað væri að valda leikanum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn