Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Leituðu að björgunarbát norður af Sandgerði
Mánudagur 8. mars 2010 kl. 15:24

Leituðu að björgunarbát norður af Sandgerði

Rétt fyrir klukkan 10 í gærmorgun var björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði kölluð út til leitar að gúmmíbjörgunarbát norður af Sandgerði sem losnað hafði af togskipinu Hring SH 153 frá Grundarfirði.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

?
Ekki er vitað nákvæmlega hvenar báturinn losnaði en neyðarsendir úr björgunarbátnum fór að senda frá sér neyðarmerki eftir að báturinn sprakk upp í sjónum. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar hófu strax eftirgrennslan og var björgunarsveitin Sigurvon kölluð út í kjölfarið.


Sigurvon sendi stax út tvo tveggja manna hópar til leitar í fjörunni og stóð hún ekki lengi þar sem að annar hópurinn kom fljótt auga á bátinn á eyri fyrir neðan Kirkjubólsvöll.


Eftir stutta leit tók við önnur leit af neyðarsendi úr björgunarbátnum til að slökkva á honum og í framhaldi að koma bátnum úr fjörunni og til Sandgerðis.
Þar sem ekki var hægt að fara á bíl niður í fjöruna þurftu björgunarmenn að draga bátinn með handafli um 100 metra í stórgrýtri fjörunni í átt að golfvellinum.


Þegar þeirri vinnu var lokið tók við vinna við að koma bátnum úr fjörunni og fékk björgunarsveitin afnot að traktorsgröfu frá Golfklúbbi Sandgerði til að flytja bátinn úr fjörunni og upp að bíl.


Myndir af vef Sigurvonar og 245.is