Leitin beinist að Kili og Kaldadal

Nú einbeita menn sér að því að skoða svæðið sunnan Hveravalla. Leitin beinist einkum að Kili og Kaldadal.
Fólkið fór frá Dalvík um klukkan fjórtán í gær og var förinni heitið suður Kjöl og síðan um Kaldadal og átti ferðinni að ljúka í Keflavík. Þrjú nítján ára ungmenni eru í bílunum sem bera skráningarnúmerin HK-089 og YH-937. Þeir sem kunna að hafa séð til ferða þessara bíla eru beðnir að hringja í neyðarlínuna 112.