Leitað með neðansjávarfari í dag
Áhöfnin á varðskipinu Þór heldur leit áfram í dag að skipverjanum sem féll útbyrðis á laugardag úti fyrir Garðskaga. Leitað verður með neðansjávarfari frá Teledyne Gavia á svæðinu þar sem talið er að maðurinn hafi fallið fyrir borð. Neðansjávarfarið er útbúið sérstakri hliðarhljóðsjá auk myndavélar sem nýtist við athugun sjávarbotnsins.
Sérfræðingur frá Teledyne Gavia fór um borð í Þór í morgun ásamt sérfræðingum frá sjómælinga- og siglingaöryggisdeild Landhelgisgæslunnar til að aðstoða við leitina. Þyrla Landhelgisgæslunnar verður einnig nýtt til leitar í dag. Leit hefst í birtingu.
Meðfylgjandi eru myndir frá varðskipinu Þór sem teknar voru í gær ásamt myndum af neðansjávarfarinu.