HSS
HSS

Fréttir

Sunnudagur 24. febrúar 2002 kl. 01:41

Leitað af skipverjanum í birtingu

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hyggjast hefja leit að skipverjanum sem saknað er af Bjarma VE í birtingu á morgun. Leitað verður frá Þjórsár að Jökulsá á Sólheimasandi. Skipverjinn er af Suðurnesjum og var búsettur í Reykjanesbæ.Björgunarskipin Oddur V. Gíslason frá Grindavík og Þór frá Vestmannaeyjum munu halda áfram leit á sjó á morgun eins og þau gerðu í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn