Leitað að tveimur stúlkum frá Sandgerði
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir tveimur stúlkum úr Sandgerði. Þær heita Natalía Rós Jósepsdóttir, Norðurgötu 25 Sandgerði og Sigurbjörg Júlia Stefánsdóttir, Bogabraut 10 Sandgerði. Stúlkurnar eru báðar fæddar 1994.
Lýsing á stúlkunum:
Natalía er 168 cm á hæð og um 70 kg. Hún er dökkhærð með liðað sítt hár og var í svartri og grárri peysu og í bláum gallabuxum. Sigurbjörg er 168 cm á hæð og um 62 kg. hún er með ljóst sítt hár og græn augu, hún var í svartri hettupeysu með stórum bleikum stöfum framan á peysunni og í bláum gallabuxum.
Stúlkurnar fóru frá heimili Sigurbjargar í gærdag um kl. 16:00 og hafa ekki látið vita af sér síðan þá.
Þeir sem verða varir við stúlkurnar, vinsamlegast hafi samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800