Leitað að flugvél sem fór í hafið
Leit hófst núna síðsdegis að tveggja hreyfla flugvél sem fór í hafiðum 50 sjómílur vestur Reykjanesi. Neyðarkall barst frá flugmanninum um kl. 16 í dag eftir að vélin missti afl á báðum hreyflum og átti flugmaðurinn, sem var einn um borð, í vandræðum með að flytja eldsneyti á milli tanka. Þyrla Landhelgisgæslunnar send til móts við vélina. Allur undirbúningur á Keflavíkurflugvelli miðaðist við að vélin kæmi þar inn til neyðarlendingar.
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar ásamt björgunarskipinu Hannes Þór Hafstein frá Sandgerðinni taka þátt í leitinni. Einnig þyrla af dönsku varðskipi sem statt var 150 mílur frá slysstað.
Efri mynd: Frá stjórnstöð á Keflavíkurflugvelli nú yfir stundu.
Neðri mynd: Vélin var stödd um 50 sjómílur frá landi.