Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Leitað að fallegustu görðum Grindavíkur
Miðvikudagur 5. ágúst 2015 kl. 07:00

Leitað að fallegustu görðum Grindavíkur

-íbúar geta sent inn tillögur

Umhverfis- og ferðamálanefnd Grindavíkurbæjar veitir umhverfisviðurkenningar í lok ágúst líkt og undanfarin ár og er óskað eftir ábendingum frá íbúum um fallega jafnt sem áhugaverða garða.

Einnig er leitað að fallegri og vel heppnaðri endurbyggingu á gömlu húsi sem og ábendingum um snyrtileg fyrirtæki.

Public deli
Public deli

Þá verða veitt verðlaun fyrir fallegasta tréð í samvinnu við Skógræktarfélag Grindavíkur.

Hægt er að koma ábendingum á framfæri með því að senda upplýsingar á umsjónarmann opinna og grænna svæða, Hjalta Guðmundsson - [email protected], á upplýsingafulltrúa Grindavíkurbæjar, Siggeir F. Ævarsson - [email protected], eða með því að hringja í síma 420 1100.

Einnig er tekið við tilnefningum í gegnum Facebooksíðu bæjarins.