Fréttir

Leita að stigahandriðum sem töpuðust við Vogaafleggjara
Samskonar sigahandriði og töpuðust á Reykjanesbraut við Vogaafleggjara.
Þriðjudagur 23. október 2018 kl. 18:14

Leita að stigahandriðum sem töpuðust við Vogaafleggjara

Dökkgrá stigahandriði töpuðust við Vogaafleggjara um kl. 14 mánudaginn 22. október. Verið var að flytja þau til Reykjanesbæjar þegar þau losnuðu af flutningskerru án þess að ökumaður yrði þess var. 
 
Sjónarvottur að atvikinu lét vita af handriðunum þar sem þau voru úti í kanti á Reykjanesbraut við Vogaafleggjara en þegar vitja átti um hlutina var búið að fjarlægja þá.
 
Þessi stigahandriði voru sérsmíði og koma engum að notum öðrum en þeim sem þau voru smíðuð fyrir.
 
Þeir sem vita um handriðin eru beðnir um að hafa samband við Jón Óskar í síma 864 9329 eða Halldór í sím 892 2735 en fundarlaun eru í boði.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024