Leisergeisla beint að flugvél í aðflugi
Tilkynning barst um helgina frá áhöfn flugvélar sem var í aðflugi að Keflavíkurflugvelli þess efnis að leisergeisla hefði verið beint að henni. Talið var að geislinn hefði komið úr Keflavík en nákvæm staðsetning lá ekki fyrir á þeirri stundu.
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið og undirstrikar að athæfi af þessu tagi er stórhættulegt.
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið og undirstrikar að athæfi af þessu tagi er stórhættulegt.