Leikskólinn Vesturberg í nýtt húsnæði
Leikskólinn Vesturberg í Reykjanesbæ er nú kominn í nýtt og stærra húsnæði sem tekið var formlega í notkun fimmtudaginn 28. ágúst sl.
Bygging leikskólans hófst í september árið 2007 og kemur hann í stað eldra íbúðarhúsnæðis á tveimur hæðum sem breytt var í leikskóla árið 1997. Fasteign hf. byggði leikskólann sem er fjögurra deilda og rúmar alls 94 börn.
Við afhendinguna sungu nemendur leikskólans fyrir boðsgesti og afhentu þeir jafnframt verktakanum að gjöf verk sem unnið var úr afgöngum sem féllu til þegar framkvæmdir stóðu yfir. Svaraði verktakinn því til við það tækifæri að það skýrði óeðlilega rýrnun á efni sem hafi orðið á meðan á framkvæmdum stóð.
Leikskólinn Vesturberg er opinn og svæðaskiptur leikskóli þar sem áhersla er lögð á sjálfsákvörðunarrétt barnanna. Nýja Vesturberg hefur að geyma fjórar heimastofur og öll svæði í húsinu eru nefnd eftir örnefnum, svæðum eða húsum í Keflavíkurhverfi. Í samræmi við stækkunina hefur orðið helmings fjölgun barna sem og aukning starfsmanna.
Nemendur leikskólans fara frjálst um húsið en kennarar eiga fasta viðveru á svæðunum viku í senn. Svæði leikskólans er skipt upp eftir námsþáttum úr Aðalnámskrá leikskóla og leggja kennarar áherslu á að vera til staðar fyrir nemendur sem hafa þó sjálfir frumkvæði að gjörðum sínum.
Markmið svæðaskipulagsins er meðal annars að sjá til þess að hver nemandi njóti sín á eigin forsendum og að þeir fái næði og svigrúm í leik sínum. Að efla frumkvæði, sköpunarþörf og ímyndunarafl nemenda, auk þess að skapa svigrúm til að nemendur geti ræktað vináttu við aðra nemendur og kennara Vesturbergs. Nemendur eru hvattir til að vinna saman og til að auka einbeitingu þeirra er reynt að brjóta ekki upp leik þeirra og starf með skipulagi sem þau fá engu ráðið um.
Leikskólinn er staðsteyptur og klæddur að utan með timbri að hluta og málaður að hluta. Lóð og leiksvæði eru 3350 m2 auk umhverfis KK húss þar sem bílastæði eru samnýtt og umhverfið hefur verið fegrað. Aðalverktaki var Hjalti Guðmundsson ehf., Verktaki lóðar var Nesprýði ehf., undirverktaktar Hjalta Guðmundssonar ehf. voru: Vatnsafl, Raflagnavinnustofa Sigurðar Ingvarssonar ehf., Málningarþjónusta Magnúsar Daðasonar ehf. og Stjörnublikk ehf., Nesprýði ehf. Leikskólinn var hannaður af THG arkitektum í Reykjanesbæ. Um aðra hönnun sáu Gunnar Ottósson, Tækniþjónusta SÁ ehf., Rafmiðstöðin ehf. Og Verkfræðistofa Suðurnesja.