Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Leikskólinn Holt fékk gæðaviðurkenningu Erasmus+
Frá verðlaunaafhendingunni í Hörpu í gær.
Fimmtudagur 9. nóvember 2017 kl. 14:06

Leikskólinn Holt fékk gæðaviðurkenningu Erasmus+

Leikskólinn Holt fékk í gær gæðaviðurkenningu Erasmus+ fyrir verkefnið „Gegnum lýðræði til læsis“ sem framúrskarandi Evrópuverkefni. Bók um verkefnið er væntanleg. Viðurkenningin var veitt á 30 ára afmælishátíð Erasmus áætlunarinnar sem haldin var í Hörpu í gær, miðvikudag.

Verkefni leikskólans hófst árið 2015 og er starfsverkefni skóla á Íslandi, Spáni, Póllandi og Slóveníu. Holt var stýriskóli verkefnisins en verkefnastjórar voru Anna Sofia Wahlström, Kristín Helgadóttir og Heiða Ingólfsdóttir.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Verkefninu var skipt niður í fjögur tímabil þar sem unnið var að ákveðnum þáttum í skólastarfinu. Fyrsta tímabil var hlutverk kennarans skoðað, annað tímabil var einblínt á þátttöku barna og lærdómsferli þeirra, þriðja var hlutverk foreldra og síðasta tímabilið var dagskipulagið og umhverfi skólana skoðað. Hvert tímabil innihélt kennaraskipti, eTwinning verkefni og aðferðir tengdar lýðræði og læsi skoðaðar. Verkefnið hefur verið afar lærdómsríkt, skemmtilegt og gefandi fyrir kennara skólans og að fá verðlaun sem þessi er til að efla kennarahópinn til enn frekara þróunarstarfs.

Leikskólinn Holt var tilnefndur til verðlauna ásamt fjölda annarra verkefna frá leikskóla til háskóla. Dómnefnd horfði til gæða, nýsköpunar, yfirfærslumöguleika, áhrifa, varanleika og verkefnastjórnunar við val á verðlaunaverkefnunum.

Holt hlaut verðlaun í flokknum Rafrænt skólasamstarf fyrir verkefnið „Gegnum lýðræði til læsis“.