HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Fréttir

Leikskólinn á Ásbrú mun heita Skógarás
Mánudagur 16. apríl 2018 kl. 09:14

Leikskólinn á Ásbrú mun heita Skógarás

Leikskólinn að Skógarbraut 932 á Ásbrú mun heita Skógarás. Þetta var tilkynnt á kynningarfundi í heilsuleikskólanum Háaleiti sem fram fór á miðvikudag í síðustu viku.
 
Valið á nafninu fór þannig fram að foreldrum, starfsmönnum og börnum gafst kostur á að koma með tilögur.  Það var síðan bæjarráð og kjörnir fulltrúar í fræðsluráði sem kusu um nafn og niðurstaðan var Skógarás.  
 
Heilsuleikskólinn Háaleiti verður fluttur síðar á árinu að Skógarbraut 932 og fær um leið nýtt nafn. Hann mun þá heita heilsuleikskólilnn Skógarás sem skýrskotar bæði til götunnar sem hann stendur við og hverfisins, Ásbrúar.

Public deli
Public deli