Bygg
Bygg

Fréttir

Leikskólamál: Þörfin brýnust í Tjarnarhverfi og Dalshverfum
Miðvikudagur 22. febrúar 2006 kl. 16:19

Leikskólamál: Þörfin brýnust í Tjarnarhverfi og Dalshverfum

Þörfin fyrir leikskólapláss í Reykjanesbæ mun verða brýnust í Tjarnarhverfi og Dalshverfum 1 og 2, samkvæmt því er fram kom í svari Árna Sigfússonar, bæjarstjóra við fyrirspurn minnihlutans um stöðu leikskólamála í sveitarfélaginu á síðasta bæjarstjórnarfundi.

 

Í svari Árna kom fram að staðan sé góð eins og er en til að mæta væntanlegri íbúaþróun þurfi að huga fljótlega að byggingu leikskóla í þessum hverfum og hugsanlegri stækkun á þeim sem fyrir eru í sveitarfélaginu. Reikni megi með í að með tilkomu nýrra hverfa muni bætast við á að giska 140 börn á leikskólaaldri á næstu 3 árum.


Bílakjarninn
Bílakjarninn