Leikskólabörn til fundar við bæjarstjóra
- Vilja fá að snerta blöðrurnar á næstu Ljósanótt
Það sannaðist í gær að íbúar í Reykjanesbæ á öllum aldri eru virkir í umræðunni og nýta lýðræðið til að koma hugmyndum sínum á framfæri. Átta fjögurra og fimm ára börn af Dal í leikskólanum Holti komu í viðtalstíma til bæjarstjóra í gær. Þau vildu koma hugmynd sinni á framfæri um hvernig væri hægt að koma því við að öll börn á setningu Ljósanæturhátíðar fengju að snerta eða slá í stóran Ljósanæturbolta. Sum höfðu ekkert fengið að snerta bolta á síðustu Ljósanótt og fannst það miður.
Þau Alexander Liljar, Fannar Ingi, Emma Ástrós, Sóley Björk, Gabríel Örn, Rebekka Júlía, Arnar þór og Telma Líf komu ásamt kennara sínum, Sigurbjörtu Kristjánsdóttur, með vel skreytt umslag merkt Kjartani Má bæjarstjóra. Í umslaginu var bréf með eftirfarandi hugmynd. „Viltu setja band á boltann eða segul á Ljósanótt?“ Helgi Arnarson, sviðsstjóri fræðslusviðs, kom á fundinn og ætla hann og Kjartan Már að sjálfsögðu taka hugmyndina til greina og þökkuðu frábært innlegg í stjórn bæjarins. Kjartan Már sagði þetta einhverja skemmtilegustu heimsókn sem hann hefði fengið.