Leikskólabörn betur búin undir grunnskólagöngu en áður
Greinilegt er að börn í leikskólum Reykjanesbæjar eru betur undirbúin undir grunnskólagöngu en áður. Þau þekkja betur ýmis stærðfræðihugtök og eru tilbúnari til lestrarnáms nú en áður.
Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri Njarðvíkurskóla, segir að hluta framfara í læsismálum í grunnskólum í bænum megi rekja til þess að áherslur eru breyttar í leikskólum. Aðspurð segir Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir, leikskólafulltrúi, að allir leikskólar á Reykjanesi leggi nú áherslu á grunnþættina stærðfræði og læsi frá tveggja ára aldri og það skili sér bæði í áhugasamari og betur undirbúnum nemendum við upphaf grunnskólagöngu.