Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Leigubílasvæði sameinuð á höfuðborgarsvæði og Suðurnesjum: Utanbæjargjald leggst af
Laugardagur 1. október 2005 kl. 16:04

Leigubílasvæði sameinuð á höfuðborgarsvæði og Suðurnesjum: Utanbæjargjald leggst af

Leigubílasvæði sameinuð á höfuðborgarsvæði og Suðurnesjum: Utanbæjargjald leggst af

Sameining takmörkunarsvæða leigubíla á höfuðborgarsvæðinu, Grindavík og Reykjanesbæ tók gildi í dag, en það kom fram í grein í Fréttablaðinu í gær. Við þetta leggst utanbæjargjald af innan svæðisins, en á daginn var það rúmar 219 krónur á kílómetra. Venjulegt daggjald er tæpar 95 krónur.

Magnús Jóhannsson, framkvæmdastjóri Ökuleiða í Keflavík, sagði í viðtali við Fréttablaðið að bílstjórar sem unnið hafi frá Leifsstöð verði af töluverðum tekjum. „Núna þurfa þeir fjóra túra til að ná sömu innkomu og þrír túrar skiluðu áður. Ég fæ ekki séð að þeir nái endum saman með þessu rugli.“ Þá segist hann óttast að þjónusta við íbúa á Suðurnesjum skerðist, því vera kunni að bílstjórar haldi til Reykjavíkur í verkefnaleit. „Svo getur náttúrlega líka gerst að íbúi í Vogum eða Grindavík hringi í leigubílastöð í Reykjavík eftir bíl í innanbæjartúr upp á 500 krónur. Bílstjóri sem lendir í því fer aldrei þangað aftur.“

Úr Fréttablaðinu í gær, www.visir.is
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024