Leigði húsnæði undir kannabisræktun í Reykjanesbæ
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði kannabisræktun í umdæminu nýverið. Ræktunin var í þremur tjöldum sem reist höfðu verið í iðnaðarhúsnæði. Samtals var um rúmlega tuttugu plöntur að ræða á hinum ýmsu vaxtarstigum. Lögregla boðaði leigjanda húsnæðisins á vettvang og viðurkenndi hann að eign sína á ræktuninni. Hann kom akandi á staðinn og vaknaði þá rökstuddur grunur um að hann væri undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Spurður hvernig stæði á því að hann væri að rækta kannabisplöntur í Reykjanesbæ þar sem hann byggi sjálfur í öðru umdæmi kvað hann húsaleiguna hagstæðari í Reykjanesbæ.