Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Leiðum að gosstöðvunum lokað klukkan 18:00 í dag
Ljósmynd/Jón Steinar Sæmundsson
Fimmtudagur 27. júlí 2023 kl. 08:39

Leiðum að gosstöðvunum lokað klukkan 18:00 í dag

Lögreglurstjórinn á Suðurnesjum hefur gefið út að í dag er opið inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi. Gönguleiðum inn á svæðið verður lokað kl. 18 í dag.

Á meðfylgjandi göngukorti má greinilega sjá merkt hættusvæði. Hættusvæðið er bannsvæði samkvæmt ákvörðun lögreglustjóra. Almenningi er skylt að hlýða fyrirmælum sem lögreglan gefur. Bannið tekur ekki til viðbragðsaðila og vísindamanna sem þurfa í vísindalegum tilgangi aðgang að svæðinu. Þá getur lögregla veitt fjölmiðlum sem gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki við öflun frétta og miðlun þeirra undanþágu frá banni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Lokun gekk vel í gær. Þá sýna flestir því skilning að aðgangur inn á gossvæðið er háður takmörkunum. Að mati lögreglustjóra er ekki forsvaranlegt að halda gönguleiðum opnum allan sólarhringinn. Af öryggisástæðum verður gönguleiðum frá Suðurstrandarvegi því lokað daglega kl. 18, eða fyrr eða seinna eftir atvikum, þegar opið er. Sú ákvörðun gildir á meðan gos stendur yfir við fjallið Litla Hrút. Vigdísarvallavegi verður lokað samhliða lokun gönguleiða.

Í gærdag slasaðist maður á fæti á gönguleið A og aðstoða þurfi lúinn ferðamann. Slökkvistarf gekk ágætlega í gær og stóð fram að miðnætti. Áætlað er að slökkvistarf hefjist að nýju kl. 10 í dag.

Fjallið Litli Hrútur er inn á hættusvæði/bannsvæði. Inn á hættusvæði/bannsvæði er fólk á eigin ábyrgð.

Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið. Ganga þarf um 18 km leið fram og til baka. Gönguferðin hentar því alls ekki öllum. Gangan fram og til baka getur tekið 5 til 7 klukkustundir. Aðrar merktar gönguleiðir eru jafnframt opnar. Meradalaleið (leið E) var opnuð daginn eftir að gos hófst. Leiðin liggur til norðausturs frá bílastæði í Stóra Leirdal í átt að útsýnisstað á Hraunsels – Vatnsfelli.

Vakin er athygli á því að gönguleið A er mun erfiðari gönguleið en leið E.

Talinn fjöldi í gær á Meradalaleið: 865. Eldri gönguleiðir: 1.481. Meradalaleið (E) var eins og kunnugt er lokuð til kl. 13 í gær.

Lögreglumenn, landverðir og sjúkraflutningamenn eru á svæðinu í dag. Björgunarsveitir sinna útköllum á svæðinu en verða þar ekki að staðaldri. Fyrirkomulag eftirlits kallar á ábyrgða hegðun ferðamanna.

Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar. Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.

Mælt er með því að fólk noti rykgrímur til að forðast mengun frá gróðureldum. Fólk fer að gosstöðvunum á eigin ábyrgð.  Þá er lögð áhersla á að ekki sé farið með börn á svæðið og að fólk með hjarta- eða lungnasjúkdóma gangi ekki að gosinu, eða þungaðar konur. Það er vegna hugsanlegrar gasmengunar en einnig vegna reyksins frá gróðureldum. Þá er gangan löng og reynist mörgum erfið.

Göngumenn klæði sig eftir veðri, taki með sér nesti og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum. Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu.

Bílum skal lagt á merktum stæðum við Suðurstrandarveg en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar.

Þeir gangi að gosstöðvum sem treysta sér til þess, vel búnir og nestaðir. Fylgist með vindátt og fréttaflutningi.

Sjá jafnframt upplýsingar á https://safetravel.is/ https://www.almannavarnir.is/ https://www.vedur.is/ https://www.visitreykjanes.is/en https://loftgaedi.is/loftgaedi.is Fjölmiðlar veki sérstaklega athygli á þessum heimasíðum.

Akstur utan vega er bannaður.

Ferðamenn fari að fyrirmælum viðbragðsaðila. Fjöllin Litli Hrútur og Keilir eru inn á merktu hættusvæði/bannsvæði.

Spá veðurvaktar um gasdreifingu:

Hæg austlæg eða breytileg átt á gosstöðvunum fyrir hádegi í dag. Gasmengunin berst til vesturs og suðvesturs og gæti orðið vart við hana í Grindavík.
Eftir hádegi í dag er útlit fyrir hæg breytilega átt á svæðinu og gæti mengunin dreifst víðar um Reykjanesskagann.
Spá gerð: 26.07.2023 22:19. Gildir til: 27.07.2023 23:59.