Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Leiðbeiningar vegna brennisteinsmengunar
Gosmóða á Reykjanesi í morgunsárið.
Fimmtudagur 9. október 2014 kl. 14:53

Leiðbeiningar vegna brennisteinsmengunar

- sem berst frá eldgosinu í Holuhrauni.

Brennisteinsmengum frá eldgosinu í Holuhrauni hefur verið að mjaka sér vestur eftir landinu hægt og bítandi. Það er um að kynna sér þær vefslóðir þar sem hægt er að fylgjast með loftgæðum á svæðinu og spám um öskufall. Foreldrar ungra barna og þeir sem eru með astma eða aðra öndunarfærasjúkdóma ættu sérstaklega að hafa varann á og fylgjast með vel.

Gott er líka að hafa í huga að allt mat á loftmengunarhættu gildir fyrst og fremst fyrir fullorðið fólk. Ungabörn eru almennt viðkvæmari fyrir loftmengun og ættu þau ekki vera utandyra, t.d. sofandi í barnavagni, ef spár um dreifingu mengunarefna gefa til kynna að mengunar sé að vænta á tilteknu svæði.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Leiðbeiningar frá Sambandi íslenskra sveitafélaga:
,,Á undanförnum vikum hefur loftmengandi gasefnið brennisteinsdíoxíð SO2 borist frá eldstöð í Holuhrauni norðan Vatnajökuls til íbúa í mörgum sveitarfélögum og hefur styrkur efnisins stundum verið svo mikill að mælt er með mjög afgerandi varnaraðgerðum, svo sem að halda sig innandyra, loka öllum gluggum, hækka hitastig innanhús o.þ.h.

Svo virðist að útbreiðsla brennisteinsdíoxíðs mun halda áfram um sinn og því er aðkallandi að huga að upplýsingagjöf til almennings sem er einföld í nálgun, áreiðanleg og skiljanleg. Brennisteinsdíoxíð er ertandi lofttegund vegna þess að það myndast brennisteinssýra þegar efnið kemst í snertingu við vatn, jafnvel þó litlu magni sé, eins og t.d. á slímhimnum. Ekki er reynsla hér á landi af svo þrálátri loftmengun sem raun ber vitni. Málið snertir flesta íbúa landsins, suma mjög mikið vegna nálægðar við eldstöðina. Upplýsingagjöf um málið hefur ekki verið nægilega kerfisbundin og almenningur þarf að leita sér upplýsinga eftir fleiri en einni leið, t.d. með því að fara á vefsíður opinberra aðila.

Mælingar á loftmengun eru ekki gerðar á öllum þéttbýlissvæðum og því þarf oft að meta út frá næstu loftgæðamælistöð, sem getur verið á svæði þar sem engin loftmengun er, á sama tíma og hún er talsverð hjá viðkomandi sem er að leita að leiðbeiningum um hvernig best sé að halda sig frá loftmengun. Sums staðar hefur heilbrigðiseftirlitið frumkvæði að því að láta t.d. skóla og leikskóla vita ef loftmengun nálgast mikinn styrk.

Hér að neðan eru nokkur góð ráð um hvernig hægt er að nálgast upplýsingar um loftmengun. Til að kanna hvort ástæða er til að gera varúðarráðstafanir er hægt að gera eftirfarandi:

1. Fara að morgni dags á vefsíðu um dreifingu loftmengunar og fylgjast með fram eftir degi ef ástæða er til: http://www.vedur.is/vedur/spar/textaspar/oskufok/. Ef rennt er niður síðuna og smellt á „nýjustu keyrslu" má fá mat á dreifingu loftmengunar u.þ.b. sólarhring fram í tímann.



2. Fara á vefsíðu Umhverfisstofnunar http://www.ust.is/einstaklingar/loftgaedi/maelingar og velja sér loftgæðamælistöð næst viðkomandi stað. Athugið að velja brennisteinsdíoxíð (SO2) ef fleiri mengunarefni er mæld í stöðinni. Íbúar í Reykjavík geta t.d. farið á vefsíðu Reykjavíkurborgar http://reykjavik.is/loftgaedi og fengið frekari upplýsingar um loftmengun.