Leggur ekki nafn sitt við sóðalega og neikvæða ímynd bæjarins
- Ellert Grétarsson segir sig frá listsýningu í Listasafni Reykjanesbæjar
Ellert Grétarsson, náttúruljósmyndari og íbúi í Reykjanesbæ er hættur við ljósmyndasýningu sem stóð til að setja upp í Listasafni Reykjanesbæjar á Ljósanótt. Þar ætlaði Ellet að sýna afrakstur 10 ára vinnu sem fólst í því að ljósmynda þá stórbrotnu náttúru sem Reykjanesskaginn hefur að geyma. Ellert birtir yfirlýsingu á vef Víkurfrétta þar sem hann rekur ástæður þess að hann hættir nú við að setja upp ljósmyndasýninguna.
„Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hafa nú samþykkt að gera okkur bæjarbúa að tilraunadýrum í lýðheilsutilraun Thorsil og annarrar stóriðju í Helguvík. Það er rosalega dapurt að sjá á hvaða vegferð bæjarfulltrúar meirihlutans eru, ekki síst vegna þess að suma þeirra studdi ég í síðustu kosningum,“ segir Ellert og bætir jafnframt við: „Einhverra hluta vegna trúði ég því að þetta væri fólkið sem kæmi með nýjar áherslur en myndu ekki taka við og halda uppi úreltri hugmyndafræði fyrrverandi meirihluta Sjálfstæðisflokksins og gera heimabæinn minn að verksmiðjubæ með ásýnd 19. aldar iðnvæðingar þar sem eiturspúandi stóriðjuverksmiðjur í bakgarðinum gnæfa yfir allt. Ekki trúði ég því að þetta væri fólkið sem væri til í að taka áhættuna með heilsu bæjarbúa og spilla lífsgæðum þeirra til þess eins að geta hugsanlega barið sér á brjóst og sýnt bata í rekstri bæjarsjóðs fyrir næstu kosningar. Ekki trúði ég því heldur að þetta væri fólkið sem væri tilbúið að lítilsvirða 40 ára uppbyggingu í hesthúsahverfinu á Mánagrund“.
Síðar í yfirlýsingunni segir Ellert: „Í ljósi þessa hef ég satt best að segja engan áhuga á því lengur að taka þátt í menningarstarfi á vegum Reykjanesbæjar. Ég kæri mig ekki um að leggja nafn mitt og verk mín við þá sóðalegu og neikvæðu ímynd sem verið er að skapa um heimabæinn minn. Að vel ígrunduðu máli hef ég því ákveðið að segja mig frá umræddu sýningarverkefni í Listasafni Reykjanesbæjar og geri það hér með“.