Leggur áherslu á mikilvægi álversframkvæmda í Helguvík
				- fyrir atvinnulíf og íbúa á Suðurnesjum
				
					
						
					
					
						
					
				
				
				 								
			Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs leggur áherslu á mikilvægi álversframkvæmda í Helguvík fyrir atvinnulíf og íbúa á Suðurnesjum. Þetta er niðurstaða bæjarráðs í Garði eftir að hafa kynnt sér frumvart til laga um heimild til samninga um álver í Helguvík.
Bæjarstjóra var jafnframt falið að senda umsögn um frumvarpið til Alþingis.



 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				