Leggja til meira fjármagn í gerð miðbæjarskipulags
Lögð var fram beiðni á síðasta fundi bæjarráðs Grindavíkur um viðauka vegna vinnu við miðbæjarskipulag Grindavíkurbæjar að upphæð fimmtán milljónir króna, sem fjármagnað verður með lækkun á handbæru fé.
Þegar er gert ráð fyrir fimm milljónum króna til verkefnisins á þessu ári. Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður tuttugu milljónir króna. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.