Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Leggja til endurgreiðslu VSK til íþróttafélaga
Frá Keflavíkurdeginum.
Miðvikudagur 4. febrúar 2015 kl. 11:44

Leggja til endurgreiðslu VSK til íþróttafélaga

Þingmennirnir Ásmundur, Páll Valur og Silja Dögg.

Þingmenn Suðurkjördæmis, Páll Jóhann Pálsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir úr Framsóknarflokknum og Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, eru meðal meðflutningsmanna með frumvarpi Willums Þórs Þórssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988. Wllum mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í dag. 

Frumvarpið miðar að því að breyta virðisaukaskattsumhverfi íþróttahreyfingarinnar og lagt er til að íþrótta- og ungmennefélögum verði endurgreiddur allur virðisaukaskattur sem greiddur hefur verið af vinnu manna við nýbyggingu, endurbyggingu og viðhaldi við íþróttamannvirki, en einnig af þjónustu vegna hönnunar, eftirlits eða viðhalds þeirra. Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að þjónusta og vörusala sem stunduð er til að afla fjár fyrir hefðbundna starfsemi íþróttafélaga verði undanþegnar virðisaukaskatti. Tímabilið í frumvarpinu er eitt ár, frá 1. janúar 2015 til 1. janúar 2016.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Á síðasta þingi var lögð fram þingsályktunartillaga um endurskoðun á virðisaukaskattsumhverfi íþróttahreyfingarinnar og stóðu sömu stjórnarþingmenn að baki henni.  

Sjálfboðaliðastarf hefur lengi verið grunnurinn að öflugu íþróttastarfi á Íslandi. Verði frumvarpið að lögum mun það stórefla allt sjálfboðaliðastarf innan íþróttahreyfingarinnar hér á landi og auðvelda íþróttafélögum alla uppbyggingu íþróttamannvirkja. Frumvarpið er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að leggja áherslu á mikilvægi íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsmála.  

Nánari upplýsingar um frumvarpið má nálgast hér.