HSS
HSS

Fréttir

Leggðu bílnum á morgun
Miðvikudagur 21. september 2005 kl. 13:09

Leggðu bílnum á morgun

Alþjóðlegur frídagur bílsins verður haldinn hátíðlegur á morgun.

Markmið hans er að vekja almenning til vitundar um nauðsyn þess að minnka mengun af völdum umferðar og hvetja til breyttra og betri samgönguhátta.

Íbúar í Reykjanesbæ eru hvattir til þess að skilja bílinn eftir heima á morgun og ganga, hjóla eða taka strætó í vinnuna.

Reykjanesbær vill minna á að frítt er í strætó alla daga ársins en hægt er að nálgast frekari upplýsingar um leiðarkerfi AVR hér.

Þeir sem ætla að hjóla í vinnuna eru hvattir til þess að muna eftir hjálminum.

VF-mynd: Úr safni

Bílakjarninn
Bílakjarninn