Laut í Grindavík hlaut hvatningarverðlaun
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 21. sinn í dag við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu. Mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson afhenti verðlaunin.
Hvatningarverðlaun 2016 hlaut foreldrafélag leikskólans Lautar í Grindavík. Foreldrafélagið hefur það að markmiði að efla aðkomu foreldra að starfi leikskólans og hefur verið með eindæmum hugmyndaríkt og drífandi og komið ótrúlegustu hugmyndum í framkvæmd. „Fyrir tilstuðlan foreldrafélagsins hafa m.a. hjúkrunarfræðinemar komið og sett upp Bangsaspítala á Bangsadeginum, öll börn hafa fengið tannbursta og tannkrem í Tannverndarvikunni, boðið var upp á listasýningu og staðið var fyrir uppákomu á 112 deginum,“ kemur fram í tilnefningunni.
Móðurmál, samtök um tvítyngi, hlutu Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2016 fyrir móðurmálskennslu. Samtökin voru formlega stofnuð árið 2001, en hafa boðið upp á móðurmálskennslu frá árinu 1994. Meginmarkmið samtakanna er að gefa börnum tækifæri til að læra og viðhalda eigin móðurmáli og koma fræðslu til foreldra, skóla og almennings. Innan raða samtakanna starfar fjöldi einstaklinga sem eru tilbúnir að leggja á sig ómælda sjálfboðavinnu til að halda úti tungumálakennslu fyrir börn sín og annarra. Móðurmálskennslan hefur farið fram í Reykjavík og í vetur hafa samtökin einnig skipulagt móðurmálskennslu á Suðurnesjum. „Það verður ómetanlegt fyrir lítið málsamfélag eins og Ísland að hér muni vaxi upp kynslóð ungs fólks sem kann mörg tungumál, ungt fólk sem á mörg móðurmál,“ segir í tilnefningunni. Í ár bárust 24 gildar tilnefningar til verðlaunanna.