Launafólk að fá lítið sem ekkert
	„Samtök atvinnulífsins hafa sett fram tilboð þar sem þau telja sig bjóða fram 23.5% hækkun dagvinnulauna í yfirstandandi samningaviðræðum. Þá hafa samtökin lagt fram breytingar á vinnutímaákvæðum samninga þar sem dagvinnutímabil er lengt um þrjár klukkustundir, matar- og kaffitímar aflagðir og breytingar lagðar til á álagsgreiðslum en við útreikning á þessu tilboði kemur fram að þetta stenst engan veginn skoðun og margt launafólk er að fá lítið sem ekkert út úr tilboðinu“. Þetta kemur fram í pistili á vef Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis.
	
	Pistilinn má lesa hér.
	 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				