HSS
HSS

Fréttir

Laun kjörinna fulltrúa í Garði hækka um 26%
Sveitarfélagið Garður.
Fimmtudagur 1. júní 2017 kl. 12:57

Laun kjörinna fulltrúa í Garði hækka um 26%

Tillaga um þóknun til kjörinna fulltrúa bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs var samþykkt samhljóða á fundi bæjarráðs Garðs í síðustu viku. Eftirfarandi tillaga var lögð fram um breytingar á launakjörum kjörinna fulltrúa:  

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Í kjölfar þess að Kjararáð hækkaði þingfararkaup þann 1. nóvember 2016, hefur verið til skoðunar hvernig leiðrétta skuli launakjör kjörinna fulltrúa sveitarfélagsins. Þróun launakjara hefur fylgt þróun þingfararkaups. Þess í stað er lagt til að breytingar á launakjörum kjörinna fulltrúa taki mið af þróun launavísitölu.  

 

Ef miðað er við þróun launavísitölu í stað þingfararkaups, hækki föst mánaðarlaun kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn Garðs um 26%, í stað 44,3% ef miðað væri við ákvörðun Kjararáðs þann 1. nóvember 2016. Breyting þessi taki gildi frá og með 1. janúar 2017. Föst mánaðarlaun kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn munu framvegis uppreiknast eftir þróun launavísitölu og fer útreikningur fram þann 1. janúar ár hvert. Um launakjör kjörinna fulltrúa fer eftir tillögu um þóknun kjörinna fulltrúa og nefndalaun.“