Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Miðvikudagur 4. júlí 2001 kl. 11:32

Laun hækka um 4,4%

Laun félagsmanna VS er starfa hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hækkuðu um 4,4% frá og með 1. launatímabili í apríl 2001.
Kaupskrárnefnd varnarsvæði felldi þann 26. júní sl. úrskurð í máli Verslunarmannafélags Suðurnesja gegn Starfmannahaldi varnarliðsins. VS hafði krafist launaleiðréttingar vegna félagsmanna sinna í starfi hjá Varnarliðinu vegna launaskriðs á árinu 2000. Úrskurður kaupskrárnefndar var á þá leið að laun félagsmanna VS er starfa hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli skulu hækka um 4,4% frá og með 1. launatímabili í apríl 2001. Þessi hækkun er til viðbótar 3% almennri hækkun samkvæmt kjarasamningi í janúar sl.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024