Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Þriðjudagur 6. febrúar 2001 kl. 22:01

Laun hækka um 2,2%

Kaupskránefnd varnarsvæði felldi þann 30. janúar sl. úrskurð í máli Verslunarmannafélags Suðurnesja gegn starfmannahaldi Varnarliðsins.
VS hafði krafist launaleiðréttingar vegna félagsmanna sinna í starfi hjá Varnarliðinu vegna launaskriðs á árinu 1999. Úrskurður kaupskrárnefndar var á þá leið að laun félagsmanna VS er starfa hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli skulu hækka um 2,2% frá og með 1. launatímabili í júlí 2000. Þessi hækkun er til viðbótar 3% almennri hækkun samkvæmt kjarasamningi í janúar sl.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024