Bygg
Bygg

Fréttir

Láttu sjá þig
Föstudagur 6. október 2017 kl. 07:00

Láttu sjá þig

Nú er að koma sá tími ársins þar sem dagsbirtunnar nýtur sem minnst og erfitt getur verið að greina svörtu fötin okkar sem við flest klæðumst á þessum árstíma. Við þekkjum öll þetta litla gagnsama öryggistæki sem heitir endurskinsmerki og er gætt þeim eiginleika að við sjáumst mikið fyrr í myrkrinu. Þau eru til í ýmsum útgáfum, lítil og stór, til að hengja utan á okkur, til að líma á flíkur  og til að klæða okkur í. Einnig er til úrval af þessum mikilvægu öryggistækjum á dýrin okkar.

Á heimasíðu Samgöngustofu eru ýmsar upplýsingar um endurskinsmerki og m.a. er þar sú staðreynd að ökumaður getur greint þann sem er með endurskinmerki í um 125 metra fjarlægð meðan sá sem er ekki með endurskinsmerki sést varla fyrr en keyrt er fram hjá honum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Nú stendur Heilsu- og forvarnarvika á Suðurnesjum yfir og margir setja sér það markmið að hreyfa sig meira útivið til að bæta heilsu og auka lífsgæði og er því tilvalið að skoða stöðu á endurskini á þeim flíkum sem við klæðumst og bæta úr þar sem þörf er á.

Endurskinsmerki fást í mörgum verslunum hér í bæ og hvetjum við íbúa til að verða sér úti um endurskin til að vera öruggari þegar við eflum heilsu í forvarnarvikunni.
Með ósk um að góðan vetur og að sjá ykkur sem best og lengst.
                                       
Slysavarnadeildin Dagbjörg